Aluminiumindustriens
Miljøsekretariat

Pilestredet Park 31
Postboks 2894  Solli
NO-0230  Oslo, Norway
Tel.  +47  23 32 60 90
Fax  +47  23 32 60 99
Mob  +47  951 44 394
e-mail 
elly@ams-aluminium.no 
 

Áhrif vinnuumhverfis/öndunarfæri

Verkefninu Áhrif vinnuumhverfis á öndunarfærin lauk með vörn doktorsritgerðar
13. júní 2008. Tone Sjåheim varði þá verk sitt
Immunopathology of occupational asthma in aluminium potroom workers
Niðurstöður
Ritgerðina á ensku og einfaldaða útgáfu á norsku er unnt að panta hjá

elly@ams-aluminium.no.
 

ÓNÆMISFRÆÐILEGAR RANNSÓKNIR Á SJÚKLINGUM ÚR ÁLIÐNAÐINUM MEÐ ATVINNUTENGDAN ASTMA (SKÁLAASTMI)
Þættir, sem leiða til  sjúkdómsins skálaastma, eru óþekktir og hafa ekki verið rannsakaðir áður.  Í astmasjúklingi á sér stað viðvarandi bólgumyndun í slímhimnu, sem þekur innra borð öndunarfæranna.  Nýleg gögn sýna, að efni, sem  virka ertandi á öndunarfærin (loftmengun), geta örvað ónæmiskerfið og valdið bólgubreytingum. 

Með þessu verkefni verða skráðar og ítarlega rannsakaðar bólgubreytingar þær, sem verða í slímhimnu öndunarfæra í  starfsmönnum kerskála, sem haldnir eru skálaastma.

AÐFERÐ
Vefsýni (lungnaberkjulífsýni) og skolvökvi úr lungunum (lungnablöðruskolun) eru rannsökuð með háþróuðum aðferðum vefjaónæmisefnafræði til að meta frumuhópa, virkni og boðefni.

Með aðferðum okkar vonumst við til að komast að, hvaða þættir ónæmiskerfisins eru mikilvægastir í sjúkdómsferlinu,  og þar með að geta rakið orsakasamhengi.  Það hefur meginþýðingu fyrir forvarnir, meðhöndlun og spár að fá úr því skorið, hvort bólgubreytingar skálaastma eru öðruvísi en astma af öðrum toga.

FJÁRMÖGNUN
Rannsóknina fjármagnar Rannsóknaráð Noregs og AMS, og hún er samstarfsverkefni prófessors Johny Kongerud, Lungnadeild Ríkissjúkrahússins og dr. med. Trond Halstensen, Háskólanum í Ósló.

ÚTGÁFUR (uppfært 27.06.2008)

Immunopathology of occupational asthma in aluminium potroom workers.
Ritgerð Tone Sjåheims varin til doktorsgráðu í læknisfræði 13. júni 2008.
Niðurstöður
 

Airway inflammation in aluminium potroom asthma
T. Sjåheim, T. S. Halstensen, M. B. Lund, Ø. Bjørtuft, P. A. Drabløs, D. Malterud,
J. Kongerud
Occup. Environ. Med. 2004;61:779-785

Ályktanir
Bólgur í öndunarvegi eru mest áberandi fyrir skála astma, og innöndun kerskálalofts veldur sjúkdómseinkennum, sem einnig koma fram við annars konar astma. Reykingar virðast örva grundvallarþætti, sem tengjast astma. Þessi ályktun er dregin af því, að frumugerðir í slímhimnum virðast vera aðrar hjá reykingafólki en tóbaksbindindismönnum á meðal astma sjúklinga.
 

Blood Eosinophils in Workers With Aluminum Potroom Asthma Are Increased to Higher Levels in Non-Smokers Than in Smokers
T. Sjåheim, J. Kongerud, T. Søyseth
Am. J. Ind. Med. 2007;50:443–448

Ályktanir
Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka samhengið á milli rósrauðra fjölkjarna hvítra blóðkorna í blóði og skálaastma.  Rannsóknin sýndi fram á samhengi. Áhrif á aukningu rósrauðra fjölkjarna hvítra blóðkorna í blóðinu komu í ljós hjá astmasjúklingum, sem reyktu. Þetta bendir til ónæmisveikingar reykinganna.
 

Reduced bronchial CD4+ T-cell density in smokers with occupational asthma
T. Sjåheim, J. Kongerud, Ø, Bjørtuft, P. A. Drabløs, D. Malterud, T. S. Halstensen
Eur. Respir. J. 2006;28:1138-1144

Ályktanir
T-einkjarna bláleit hvít blóðkorn í slímhimnu öndunarfæranna í starfsmönnum með skálaastma verða fyrir áhrifum af vindlingareykingum.  Bindindisfólk á reyk með skálaastma sýnir aukningu á undirhópi T-einkjarna bláleitra hvítra blóðkorna (CD4+ T-frumur), eins og venjulegir astmasjúklingar, sem ekki reykja.  Reykingafólk með skálastma sýna aftur á móti enga aukningu á CD4+ T-frumum. Uppsöfnun CD4+ T-fruma í astmasjúklingum, sem ekki reykja, virðist þess vegna vera haldið í skefjum hjá astmasjúklingum, sem reykja. Þetta bendir til, að reykingar dragi úr bólgum í öndunarfærum starfsmanna með starfstengdan astma í áliðnaðinum.

Eintak af greininni á pdf-skrá má panta hjá
elly@ams-aluminium.no.

Tengiliðir:

Tone Sjåheim
Lungepoliklinikken
Rikshospitalet
NO-0027  OSLO  Norway
Tel.: +47  23 07 20 27
e-mail: 
tonebs@odont.uio.no

[Til baka]

 [Homepage] [Norsk] [Íslenska] [English]