Aluminiumindustriens
Miljøsekretariat

Pilestredet Park 31
Postboks 2894  Solli
NO-0230  Oslo, Norway
Tel.  +47  23 32 60 90
Fax  +47  23 32 60 99
Mob  +47  951 44 394
e-mail 
elly@ams-aluminium.no 
 

Athygli-og samskiptaþjálfun

Verkefnið Athygli-og samskiptaþjálfun hófst 1. maí 2004 og
því lauk í marz 2005.  Þátttökufyrirtæki:

  • Elkem Aluminium
  • Hydro Aluminium
  • Alcan á Íslandi
  • Norðurál
  • Kubikenborg Aluminium
  • Sør-Norge Aluminium
  • Vigeland Metal Refinery

Baksvið
90 % af óæskilegum atvikum í verksmiðjum okkar eiga rætur að rekja til varasams atferlis. Á hinn bóginn beinast 85 % aðgerðanna að tæknilegum úrlausnum vandans. Að veita vinnulaginu athygli með áherzlu á öruggt atferli ásamt frásögn af því, sem menn urðu vísari, er höfuðatriði í atferlisgrundaðri öryggisvinnu.  Fyrirtæki, sem hafa nýtt sér tækni atferlisgrundaðs öryggis, þar sem samskipti og athygli eru hyrningarsteinar, hafa þróazt fram á við.  Okkur vantar þó góð hjálpartæki til að kenna athygli og samskipti.  Sífellt fleiri starfsmönnum er fengið það hlutverk að veita vinnulagi athygli og að gefa skýrslu um það, sem þeir verða áskynja. Þetta er aðferð til að virkja starfsmenn í öryggisvinnunni.  Kennslunni í því, hvernig þetta megi gera með sem árangursríkustum hætti, er þó ábótavant.

Markmið
Að setja á myndband gagnvirka þjálfun til notkunar við kennslu athygli-og samskiptaaðferða, þar sem einblínt er á öruggt atferli.

Framkvæmd
Útgáfunefnd var sett á laggirnar.  Hún bar ábyrgð á vinnslu myndbands og leiðbeiningaheftis, sem lokið var við í marz 2005. Myndband með heitinu “Hví að láta sig málið skipta?” er til reiðu og er AMS-félögum að kostnaðarlausu.  Það er til á norsku, íslenzku og sænsku og unnt er að panta það hjá
elly@ams-aluminium.no.

Gætum hvert annars

Tengiliðir:

Bjørn Inge Johansen
Alcoa Lista
Postboks 128
NO-4551  FARSUND Norway
Tel.: +47  38 39 92 86
e-mail: 
bjorn-inge.johansen@elkem.no

[Til baka]

 [Homepage] [Norsk] [Íslenska] [English]