|
Verkefnið Framferði og verklag við framfylgd umferðarreglna hófst 1. maí 2011 og mun ljúka 1. maí 2014. Þátttökufyrirtæki:
- Alcan á Íslandi
- Alcoa Fjarðaál
- Alcoa Lista
- Hydro Aluminium Høyanger
- Hydro Aluminium Karmøy
- Hydro Aluminium Sunndal
- Hydro Aluminium Årdal
- Kubikenborg Aluminium
- Sør-Norge Aluminium
- Vigeland Metal Refinery
Bakgrunnur Verkefnið Vinnuvélar og öryggi, hefur verið framkvæmt síðan 2001 og með breyttri útfærslu árið 2008. Athyglinni hefur verið beint að kennslu ökumanna og tæknilegu ástandi ökutækja. Þetta var svo víkkað út með Umferðarhegðun árið 2008.
Nýtt verkefni var sett á laggirnar árið 2011 og skal standa í 3 ár. Heiti þess er Framferði og verklag við framfylgd umferðarreglna.
Aðalmarkmið
- Að bæta notkun viðmiðana og reglna, sem settar eru hjá hverri verksmiðju, og samanburður á bezta verklagi með eftirlitsskoðunum.
- Bætt skjölun og stjórnun við að tryggja góða umferðarhegðun með bættri nýtingu upplýsinga, sem vistaðar eru í skjalakerfi ökutækja.
Verkefnisaðgerðir Eftirlitsskoðanir Skoðun á beitingu stjórnkerfa og verklagsreglna við hverja verksmiðju á sér stað á rekstri ökutækjanna, viðhaldi og gangandi vegfarendum að því, er snýr að kröfum hvers fyrirtækis. Athyglinni verður beint að eftirfarandi atriðum
- Viðmiðun fyrir ökutæki og gangandi
- Áhættugreining
- Umferðarreglur
- Sætisólar
- Hraðatakmarkanir
- Ljós
- Skoðun í upphafi vaktar
- Kennsla
- Skipulagt viðhald
- Aðgreining vegfarenda
- Mælingar
- Eftirlitsskoðanir
Miðlægt atriði verður, hvað gerist úti í mörkinni, og hvernig framlínumennn/verkstjórar bregðast við atvikum.
Skoðunarmenn með þekkingu og reynslu af viðmiðunum og reglum, ásamt tæknilegu ástandi ökutækisins, verða valdir af öllum aðildarverksmiðjunum, sem þátt taka í verkefninu. Eftirlitsskoðunarmenn eru valdir úr hópi öryggisfulltrúa, HMS-starfsfólks, stjórnenda og vinnuvélaverkstæðis. Skoðunum skal dreifa eins jafnt og kostur er yfir 3 ára tímabil. Verkefnisskýrslu skal senda til verkefnistengiliðar í hverri verksmiðju, AMS-skrifstofunnar og verkefnisstjórans.
Útdeiling gagna og tilvika Leggja til og reyna í a.m.k. 2 verksmiðjum ferli til nýtingar sem skjölunarkerfi fyrir ökutæki. Sannreynið ferlið og reynslu frá öllum verksmiðjum með fyrirlestrum, og fyrir áhugasamar nýjar verksmiðjur skal kerfið vera á boðstólum til að sýna fram á gildi sitt með sýningu í heimsókn til verksmiðjunnar.
|